Europa Cinemas styðja Bíó Paradís

Bíó Paradís.
Bíó Paradís. mbl.is/Golli

Evrópsku kvikmyndahúsasamtökin Europa Cinemas hafa sent borgarstjóra og mennta- og menningarmálaráðherra bréf þar sem þau lýsa yfir stuðningi við Bíó Paradís og hvetja til þess að bíóinu verði forðað frá lokun.

Klapptré greinir frá þessu. 

Alls eru 3.123 kvikmyndasalir í 43 löndum innan samtakanna. 

Bíó Paradís er hluti af Europa Cinemas, sem styðja kvikmyndahús sín til að sýna evrópskar kvikmyndir í gegnum áætlun Evrópusambandsins, MEDIA.

Í bréfi sínu segir forstjóri samtakanna að Bíó Paradís sé eitt af flaggskipum samtakanna og að bíóið sé mikilvægt fyrir menningarlíf landsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert