Flýta byggingu nýs heimilis með 100 milljónum

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. mbl.is/Eggert

Byggingu nýs áfangaheimilis Kvennaathvarfsins verður flýtt með 100 milljóna króna fjárframlagi á þessu ári, samkvæmt tillögu til þingsályktunar um tímabundið fjárfestingarátak stjórnvalda til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.

Tillagan er til umfjöllunar á Alþingi í dag, að því er fram kemur í tilkynningu frá stjórnarráðinu.

Segir í henni að verkefnið sé liður í fjárfestingum ríkisins til að bregðast strax á þessu ári við efnahagslegum og samfélagslegum áhrifum veirunnar.

„Um er að ræða átján nýjar leiguíbúðir sem skjólstæðingar Kvennaathvarfsins geta leigt til ákveðins tíma, samhliða því að fá stuðning innan athvarfsins. Safnað var fyrir verkefninu með þjóðarátakinu Á allra vörum árið 2017. Framlög ríkisins nú munu bæði flýta verkefninu og gera Kvennaathvarfinu kleift að bregðast við aukinni þjónustuþörf,“ segir í tilkynningunni.

Hætta á auknu heimilisofbeldi

Haft er um leið eftir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra að heimilið sé því miður ekki griðastaður fyrir alla og að mikilvægt sé að huga að því á tímum þar sem fólk dvelji meira á heimilum sínum en áður.

„Bæði innlend og alþjóðleg mannréttindasamtök hvetja stjórnvöld til að bregðast við hættu á auknu heimilisofbeldi. Með því að flýta byggingu áfangaheimilis Kvennaathvarfsins er stigið mikilvægt skref til þess og athvarfið fær svigrúm til að veita fleirum þjónustu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert