Fréttaljósmyndir síðasta árs til sýnis í Kringlunni

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, við ljósmynd sem dómnefnd útnefndi …
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, við ljósmynd sem dómnefnd útnefndi sem Fréttaljósmynd ársins en hún var tekin af japanska ljósmyndaranum Yasuyoshi Chiba fyrir Agence France – Presse. Kristinn Magnússon

Ljósmyndasýningin World Press Photo var opnuð í gær í Kringlunni og gátu gestir og gangandi þar virt fyrir sér þær fréttaljósmyndir ársins 2019 sem unnu til verðlauna World Press Photo-samtakanna. Kringlan stendur fyrir sýningunni í samstarfi við Morgunblaðið.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, opnaði sýninguna formlega auk þess sem Kristinn Magnússon, formaður Blaðaljósmyndarafélags Íslands, hélt stutt erindi. 

Alls tóku 4.282 atvinnuljósmyndarar frá 125 löndum þátt í World Press Photo-samkeppninni í ár og voru 73.996 ljósmyndir sendar inn. 

Ráðherra myndar fréttaljósmynd síðasta árs.
Ráðherra myndar fréttaljósmynd síðasta árs. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ljósmyndin sem dómnefnd útnefndi sem fréttaljósmynd ársins var tekin af japanska ljósmyndaranum Yasuyoshi Chiba fyrir Agence France – Presse.  Myndin sýnir ungan mann, sem er lýstur upp af farsímum, flytja mótmælaljóð meðan mótmælendur kyrja slagorð og krefjast borgaralegrar stjórnar þegar slökkt var á ljósum í Khartoum í Súdan 19. júní 2019.

Dómnefndin veitti alls 44 ljósmyndurum verðlaun í 8 efnisflokkum og koma verðlaunahafar frá 24 löndum.

Rýnt í bestu fréttaljósmyndir síðasta árs.
Rýnt í bestu fréttaljósmyndir síðasta árs. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert