Ljósin á Óslóartrénu voru tendruð á Austurvelli í kvöld. Ólíkt síðustu árum voru ekki nokkur hundruð manns viðstaddir vegna samkomutakmarkana.
Hákon Örn Steen Bjarnason tendraði ljósin á trénu ásamt Degi B. Eggertssyni borgarstjóra.
Tréð er töluvert meira skreytt heldur en síðustu ár en fjórum sinnum fleiri perur eru á því auk 50 borða og óróa með Bjúgnakræki sem seldur er til styrktar Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra.
Ljósin voru tendruð í beinni útsendingu í kvöldfréttum Rúv.