Hraunpollur við Norðra tæmst

Gígarnir tveir í eldgosinu í Geldingadölum.
Gígarnir tveir í eldgosinu í Geldingadölum. mbl.is/Jónas Erlendsson

Hraunpollurinn við Norðra, nyrðri gíg eldgossins í Geldingadölum, tæmdist að hluta í nótt ef marka má athuganir eldfjalla- og náttúruvárhóps Háskóla Íslands sem birtust á facebooksíðu hans. 

Breytingarnar eru merktar á mynd sem birtist hér að neðan. Þar segir einnig að yfirborð pollsins hafi lækkað um einhverja metra, en ekki er vitað með vissu hvert hraunkvikan flæddi frá pollinum, en lægð í rima hans að norðanverðu gæti bent til þess að útflæðið hafi verið til norðvesturs.

„Flæði heldur áfram í pollinn og verður fróðlegt að sjá hvort og hversu hratt tekst að fylla hann á nýjan leik,“ segir í færslunni. 

Sjá má færslu hópsins hér:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert