Samið við Reykjalund og HNLFÍ vegna Covid-endurhæfingar

Reykjalundur og Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands (HNLFÍ) munu sjá um þjónustu …
Reykjalundur og Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands (HNLFÍ) munu sjá um þjónustu fyrir þá sem veikst hafa af Covid-19 og þurfa á endurhæfingu að halda. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sjúkratryggingar Íslands hafa samið við Reykjalund og Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands (HNLFÍ) um þjónustu fyrir þá sem veikst hafa af Covid-19 og þurfa á endurhæfingu að halda. Verið er að kanna möguleika á að bjóða sambærilega þjónustu á fleiri stöðum. Ef sérlega umfangsmikillar eða flókinnar þjónustu er þörf verður hún veitt á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri í samráði við Covid-göngudeildir þessara sjúkrahúsa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sjúkratryggingum.

Þar segir jafnframt að skipulag þjónustunnar miði að því að þeir sem á henni þurfa að halda eigi sem greiðastan aðgang að endurhæfingu við hæfi. Þannig munu þeir sem þurfa á tiltölulega einfaldri endurhæfingu að halda eiga aðgang að henni innan heilsugæslunnar en þeir sem þurfa sérhæfða þjónustu fá hana á Reykjalundi og á Heilsustofnun.

Heilsugæslan mun vísa sjúklingum í þessi sérhæfðu úrræði en einnig geta sérgreinalæknar á sjúkrahúsum og einkastofum sent tilvísanir til Reykjalundar og Heilsustofnunar.  

Tekið er fram að þekking á endurhæfingu sjúklinga sem veikst hafa af Covid-19 sé á þessu stigi takmörkuð og ekki liggi fyrir áreiðanlegar upplýsingar um t.d. hlutfall sjúklinga sem þurfa á endurhæfingu að halda né upplýsingar um það hvaða einkenni kalla helst á endurhæfingarþjónustu. Alvarleiki veikinda við sýkingu af völdum kórónuveirunnar segir ekki endilega til um þörf fyrir endurhæfingu.

Þjónusta endurhæfingarinnar verður skipulögð út frá einkennum hvers um sig og áhersla lögð á greinargóða skráningu á meðferðarmarkmiðum og mati á þeim árangri sem næst. Verður þjónustan svo þróuð frekar á grundvelli þess mats og niðurstaðna erlendra rannsókna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert