Landspítali færður á hættustig

Frá gjörgæsludeild Landspítala.
Frá gjörgæsludeild Landspítala. Ljósmynd/Landspítali

Viðbragðsstjórn Landspítala hefur ákveðið að setja spítalann á hættustig frá miðnætti í kvöld, 22. júlí 2021. Er þessi ákvörðun tekin í ljósi þess að faraldurinn er í veldisvexti, verkefni Covid-göngudeildar aukast daglega í samræmi við það, fleiri sjúklingar í eftirliti eru veikir, fjöldi starfsfólks er í sóttkví vegna berskjöldunar og nýlegrar komu erlendis frá, mönnun er með minnsta móti vegna sumarleyfa auk þess sem mikil óvissa ríkir um þróun faraldursins, innlagnatíðni og alvarleika veikinda. 

„Á Landspítala liggja nú tveir sjúklingar með Covid-19 á smitsjúkdómadeild. Alls er nú 301 einstaklingur í eftirliti á Covid-göngudeild, þar af 25 börn. Tíu sjúklingar eru í sérstöku eftirliti með tilliti til innlagnar. Fimm starfsmenn eru í einangrun, 10 í sóttkví A (sóttkví í samfélaginu) og alls 225 í vinnusóttkví,“ segir í tilkynningu frá Landspítala. 

„Í raun hefur spítalinn verið að færast af óvissustigi á hættustig undanfarna tvo sólarhringa með daglegum fundum viðbragðsstjórnar og farsóttanefndar og hertum sóttvarnaaðgerðum innan spítalans. Það er því eðlilegt að uppfæra viðbúnaðarstig til samræmis við þær aðgerðir. “

En hvað þýðir hættustig?

„Orðinn atburður sem kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlun. Aukið og breytt álag er á fjölmargar starfseiningar. Þetta getur falið í sér bæði breytta starfsemi og tilflutning á verkefnum og starfsfólki,“ segir í tilkynningu spítalans. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert