Logi alltaf á tánum

Hafnfirðingurinn Logi Guðmundsson er byrjaður í námi í einum frægasta …
Hafnfirðingurinn Logi Guðmundsson er byrjaður í námi í einum frægasta ballettskóla heims. Ljósmynd/Aðsend

San Francisco-ballettskólinn er einn sá þekktasti sinnar tegundar í heiminum og mun færri fá þar inngöngu en sækjast eftir því. Helgi Tómasson, listrænn stjórnandi ballettdansaraflokks skólans, bauð Loga Guðmundssyni, 16 ára nemanda í Listdansskóla Íslands, á fjögurra vikna námskeið í SF-skólanum í sumar. Í kjölfarið var honum boðið að stunda þar nám í vetur sér að kostnaðarlausu.

„Ég ætlaði að fara í Ballettskóla Amsterdam í Hollandi í haust en þurfti ekki að hugsa mig um tvisvar þegar ég fékk þetta boð,“ segir Logi en hann er fyrsti íslenski karlmaðurinn til að fá inngöngu.

Nánar um málið í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert