Baltasar fékk 500 milljónir

Kvikmyndin var að mestu tekin hér á landi árið 2020.
Kvikmyndin var að mestu tekin hér á landi árið 2020. Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir

Netflix-kvikmyndin Against the Ice sem Baltasar Kormákur og fyrirtæki hans RVK Studios framleiddi fékk rétt tæpan hálfan milljarð króna í endurgreiðslu frá íslenska ríkinu í ár. Myndin var að mestu gerð á Íslandi og skartaði nokkrum íslenskum leikurum í aukahlutverkum.

Þetta er langhæsta endurgreiðslan vegna kvikmyndagerðar á þessu ári en lögum samkvæmt eiga framleiðendur kvikmynda eða sjónvarpsefnis á Íslandi kost á endurgreiðslum á allt að 35% af framleiðslukostnaði sem fellur til hér á landi.

Lesa má nánar um málið í Morgunblaðinu í gær. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert