Kviknaði í bíl í Víðidal

Víðidalur, með Víðidalsá í forgrunni og Víðigerði í bakgrunni.
Víðidalur, með Víðidalsá í forgrunni og Víðigerði í bakgrunni. Mbl.is/Einar Falur

Eldur kviknaði í bíl í Víðidal í Vestur-Húnavatnssýslu á áttunda tímanum í kvöld. Bíllinn var á hringveginum þegar eldurinn kviknaði.

Þetta staðfestir Birgir Jónasson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra, í samtali við mbl.is.

Engin slys urðu á fólki en fjórir voru um borð í bílnum. Þá liggur ekki fyrir hvers vegna kviknaði í bílnum. 

Hringveginum var lokað í um hálftíma vegna atviksins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert