Gordon Ramsay í 66°Norður-úlpu

Við birtum frétt hér áðan um að meistari Gordon Ramsay væri að skammast í kjánakokkum um víða veröld sem misþyrmdu mat að hans viti. Allt er þetta nú til gamans gert enda vita aðdáendur kappans fátt skemmtilegra en að hlusta á hann fárast yfir vitleysunni.

Glöggur lesandi fréttarinnar benti á að Ramsay væri í úlpu frá 66°Norður og ef betur er að gáð sést að það er hárrétt. Ljóst er að kappinn kann gott að meta enda hefur hann verið iðinn við að heimsækja land og þjóð og greinilega náð að versla eitthvað í leiðinni.

@gordonramsayofficial

##duet with @itsmeju1iette The review you’ve been waiting for....there must be an idiot sandwich in there somewhere ! ##ramsayreacts ##tiktokcooks

♬ It's Beginning to Look a Lot Like Christmas - Perry Como & The Fontane Sisters - 🎄🎄🎄
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert