Sláandi játning Gordon Ramsay

Gordon Ramsay er skemmtilega skapheitur.
Gordon Ramsay er skemmtilega skapheitur.

Svo falla krosstré sem önnur. Meistari Gordon Ramsay játaði á dögunum það sem hann kallar sjálfur sitt skelfilega leyndarmál.

Í nýjasta þætti Master Chef áttu keppendur að búa til vegan rétt fyrir Ramsay sem uppfyllti kröfur hans. Ramsay hefur verið fremur hávær í gagnrýni sinni á veganisma og vegan mat við litlar vinsældir vegan samfélagsins.

Í þættinum játaði Ramsay hins vegar að honum þætti vegan matur góður. „Þetta er svo mikið leyndarmál að ég þori varla að segja frá því í sjónvarpinu,“ sagði hann. „Eftir öll þessi ár get ég loksins játað að mér finnst vegan matur mjög góður,“ bætti hann við.

Þar höfum við það. Varla skelfileg játning en það skal viðurkennast að Ramsay hefur verið hávær í gagnrýni sinni og fengið mikla athygli út á það – ekki síst á TikTok þar sem fólk fárast yfir flestu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert