Enskur varnarmaður í Fylki

Fylkismenn hafa fengið liðsstyrk.
Fylkismenn hafa fengið liðsstyrk. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnumaðurinn Michael Kedman hefur fengið leikheimild með Fylki en hann er 23 ára vinstri bakvörður sem spilaði síðast á Spáni.

Kedman var á mála hjá Tres Cantos í spænsku D-deildinni árið 2018 en verið án félags síðan. Hann var á mála hjá unglingaliðum West Ham og Chelsea á Englandi á yngri árum.

Fylkismenn eiga næst ÍA á Akranesi á laugardaginn, gangi það eftir að Íslandsmótið geti hafið göngu sína á ný á föstudaginn. Árbæingar eru í 3. sæti úrvalsdeildarinnar eftir níu leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert