Hazard verður áfram hjá Chelsea

Eden Hazard.
Eden Hazard. AFP

Knattspyrnumaðurinn Eden Hazard verður áfram hjá Chelsea en belgíski sóknarmaðurinn var orðaður við félagsskipti til Real Madrid í sumar.

Þetta staðfesti knattspyrnustjóri Lundúnaliðsins, Maurizio Sarri, á blaðamannafundi sínum í dag. Félagsskiptaglugganum hefur nú þegar verið lokað á Englandi en á Spáni lokar hann ekki fyrr en um næstu mánaðamót. Sóknarmaðurinn verður þó ekki seldur, enda ómögulegt fyrir Chelsea að fá mann í hans stað.

Hazard er 27 ára gamall en hann gekk til liðs við Chelsea árið 2012. Hann hefur spilað 302 leiki fyrir félagið og skorað í þeim 89 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert