Giroud heldur kyrru fyrir á Stamford Bridge

Oliver Giroud.
Oliver Giroud. AFP

Chelsea hefur virkjað ákvæði í samningi sínum við franska landsliðsmanninn Oliver Giroud og mun hann því spila með Lundúnaliðinu á næstu leiktíð.

Giroud kom til Chelsea frá Arsenal í janúar á síðasta ári og gerði eins og hálfs árs samning við félagið.

Giroud, sem er 32 ára gamall, kom við sögu í 27 leikjum með Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni og skoraði aðeins tvö mörk. Giroud og félagar hans eiga eftir að spila einn leik á tímabilinu en þeir mæta Arsenal í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í Bakú í Aserbaídsjan þann 29. þessa mánaðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert