Lykilmaður frá næstu tvo mánuðina

Raúl Jimenez verður frá keppni næstu tvo mánuði.
Raúl Jimenez verður frá keppni næstu tvo mánuði. AFP

Mexíkóski knattspyrnumaðurinn Raúl Jímenez verður frá keppni næstu átta vikurnar vegna meiðsla sem hann varð fyrir í æfingaleik með Wolves.

Hann gæti því misst af fyrstu átta umferðum Wolves í ensku úrvalsdeildinni á komandi leiktíð.

Jímenez varð fyrir meiðslunum í 3:0-sigrinum á Besiktas frá Tyrklandi en hann gerði fyrsta markið, áður en hann þurfti að fara af velli.

Er um mikið áfall fyrir Wolves að ræða en Jímenez hefur verið helsti framherji liðsins undanfarin ár og skorað 40 mörk í 120 leikjum með Wolves í ensku úrvalsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert