88 aukaspyrnur en ekkert mark

Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo. AFP

Mörk úr aukaspyrnum hefur verið eitt af vörumerkjum portúgalska knattspyrnumannsins Cristiano Ronaldo sem leikur með Real Madrid.

Eitthvað er Ronaldo farið að förlast á þessu sviði því samkvæmt tölfræði Opta hefur hann nú tekið 88 aukaspyrnur án þess að skora.

Síðasta aukaspyrnumark Portúgalans leit dagsins ljós í leik á móti Eibar þann 11. apríl á þessu ár og fyrir það hafði hann spilað 56 leiki án þess að skora mark úr aukaspyrnu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert