„Ég á þetta skilið“

Cristiano Ronaldo fagnar Evrópumeistaratitlinum í kvöld.
Cristiano Ronaldo fagnar Evrópumeistaratitlinum í kvöld. AFP

Cristiano Ronaldo fór enn á ný á kostum fyrir Real Madrid í kvöld og skoraði tvö mörk þegar liðið vann Juventus 4:1 í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

„Ég bjó mig undir þetta. Þú vinnur stærstu verðlaunin vegna þess sem þú afrekar undir lok hvers tímabils,“ sagði Ronaldo og hrósaði knattspyrnustjóranum Zinedine Zidane.

„Zidane var mjög jákvæður í hálfleiksræðu sinni og sagði okkur að hann trúði á okkur. Þetta er ótrúlegur endir á tímabilinu hjá okkur. Við erum fyrsta liðið sem vinnur keppnina tvö ár í röð og ég skoraði tvö mörk.

Þetta er enn eitt metið sem við setjum og leikmennirnir eiga þetta skilið. Ég á þetta skilið líka, því ég skoraði tvisvar og er markahæstur í Meistaradeildinni,“ sagði Ronaldo.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert