AC Milan kaupir brasilískan landsliðsmann

Lucas Paquetá verður áfram í rauðu og svörtu.
Lucas Paquetá verður áfram í rauðu og svörtu. Ljósmynd/acmilan.com

Ítalska knattspyrnufélagið AC Mílan gekk í dag frá kaupum á Lucas Paquetá, 21 árs Brasilíumanni frá Flamengo. Paqetá skrifaði undir fimm ára samning við Mílan, en kaupverðið er 35 milljónir evra. 

Paqetá spilaði fyrsta landsleikinn sinn gegn Bandaríkjunum í september á síðasta ári og á hann tvo landsleiki að baki. Hann skoraði 13 mörk í 65 leikjum fyrir Flamengo í heimalandinu.
Sóknarmaðurinn skoraði 10 mörk í 32 deildarleikjum fyrir Flamengo á síðasta ári, en liðið endaði í öðru sæti brasilísku A-deildarinnar á eftir Palmeiras. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert