Trausti tók metið aftur af Ívari

Trausti Stefánsson bætti Íslandsmet í dag
Trausti Stefánsson bætti Íslandsmet í dag mbl.is/Ómar Óskarsson

Trausti Stefánsson úr FH setti nýtt Íslandsmet í 300 m hlaupi innanhúss í Kaplakrika í dag er hann hljóp á 34,05 sekúndum. 

Trausti bætti þá met Ívars Kristins Jasonarsonar sem hljóp á 34,38 sekúndum í janúar, en Ívar hafði þá bætt rúmlega fim ára gamalt met Trausta.

Stutt er síðan Trausti vann til bronsverðlauna í 400 metra hlaupi á sænska meistaramótinu. Þar varð hann einnig sænskur meistari í 4x200 metra boðhlaupi. Innanhústímabilinu hjá Trausta lýkur um næstu helgi þegar hann hleypur 400 metra hlaup í bikarkeppni FRÍ hér á landi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert