Ari Bragi bætti Íslandsmetið

Ari Bragi
Ari Bragi mbl.is/Golli

Ari Bragi Kárason úr FH bætti í kvöld eigið Íslandsmet í 100 metra hlaupi er hann kom í mark á 10,51 sekúndu.

Ari Bragi setti fyrra met fyrir ári og í kvöld atti hann kappi við félaga sinn hjá FH, Kolbein Höð Gunnarsson, sem hljóp á 10,63 sekúndum, og bætti eigið met um 1/100 úr sekúndu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert