Róberti stórbætti Íslandsmetið og varð fjórði

Róbert Ísak Jónsson er að gera það gott í lauginni …
Róbert Ísak Jónsson er að gera það gott í lauginni í Sheffield. Ljósmynd/ÍF

Róbert Ísak Jónsson úr Íþrótta­fé­lag­inu Firði í Hafnar­f­irði hafnaði í 4. sæti í 200 metra fjórsundi á opna breska meistaramótinu sem nú stend­ur yfir í Sheffield á Englandi.

Ró­bert, sem kepp­ir í flokki þroska­hamlaðra, kom í mark á 2:15,07 mínútum og setti um leið nýtt og glæsilegt Íslandsmet. Í undanrásunum í morgun setti hann nýtt met þegar hann synti á tímanum 2:17,01 mínútu.

Róbert Ísak ásamt einni af bestu sundkonum okkar Íslendinga, Ragnheiði …
Róbert Ísak ásamt einni af bestu sundkonum okkar Íslendinga, Ragnheiði Runólfsdóttur, en Ragnheiður er yfirþjálfari Sundfélagsins Óðins á Akureyri og annar tveggja þjálfara í ferðinni ásamt Inga Þór Einarssyni. Ljósmynd/Íþróttasamband fatlaðra

Japaninn Dai Tokairin landaði gullinu á 2:12.84 mín. svo það er morgunljóst að Róbert þarf að spýta enn frekar í lófana ef hann ætlar sér að skáka þeim hröðustu í greininni. Hollendingurinn Marc Evers hafnaði í 2. sæti á tímanum 2:13,22 mín. en hann hefur verið lengi að í sundi S14 (þroskahamlaðir) og borið hróður greinarinnar víða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert