Stórsigrar hjá Aroni og Degi

Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í Japan unnu stórsigur á …
Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í Japan unnu stórsigur á Asíuleikunum í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Asíuleikarnir í handknattleik eru nú í fullum gangi en þeir fara fram í Jakarta í Indónesíu. Í nótt mættu lærisveinar Dags Sigurðssonar í Japan landsliði Pakistan í B-riðli keppninnar en Japan vann öruggan 38:15-sigur. Þetta var fyrsti leikur Japana á mótinu og eru þeir í öðru sæti B-riðils með 2 stig en Japanar mæta Suður-Kóreu í úrslitaleik um efsta sæti riðilsins 17. ágúst.

Þá unnu lærisveinar Arons Kristjánssonar í Barein 32:25-sigur gegn Indlandi í D-riðli en Barein er með fullt hús stiga í D-riðlinum eftir fyrstu tvo leiki sína. Liðið mætir Taívan í lokaleik sínum í riðlakeppninni 17. ágúst en Barein dugar jafntefli til þess að fara áfram í útsláttarkeppnina.

Aron Kristjánsson.
Aron Kristjánsson. mbl.is/Styrmir Kári
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert