Brattur þrátt fyrir erfiðan sjúkdóm

David Blatt glímir við erfiðan sjúkdóm.
David Blatt glímir við erfiðan sjúkdóm. AFP

David Blatt, fyrrverandi þjálfari Cleveland Cavaliers í bandaríska NBA-körfuboltanum, hefur verið greindur með MS-sjúkdóminn. Platt er sem stendur þjálfari Olympiacos í Grikklandi og félagið staðfesti veikindi þjálfarans á heimasíðu sinni.

Blatt fór með Cleveland alla leið í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar gegn Golden State Warriors árið 2014, en þurfti að játa sig sigraðan. Hann var rekinn um mitt næsta tímabil, áður en liðið varð meistari með sigri á Golden State. 

Hann hefur verið þjálfari Olympiacos síðan í júní á síðasta ári. Þrátt fyrir að hafa verið nýgreindur með erfiðan sjúkdóm var Platt brattur í viðtali við heimasíðu gríska félagsins. 

„Ég er þjálfari og starfið mitt snýst um að vera leiðtogi og hvetja fólk áfram. Ég ætla ekki að kvarta neitt og ég vona að leikmenn haldi áfram að vera bestu útgáfurnar af sjálfum sér. Ég mun reyna það sjálfur líka," sagði Platt, sem verður áfram þjálfari Olympiacos. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert