Óvissa um efndaskyldu hótela

Konsúlat hótel við Hafnarstræti. Hótelið var áður í eigu Icelandair …
Konsúlat hótel við Hafnarstræti. Hótelið var áður í eigu Icelandair Group er nú í fullri eigu malasíska hótelrisans Berjaya. Icelandair Group ber enn ábyrgð á greiðslu sex mánaða leigu samkvæmt leigusamningi við Suðurhús. mbl.is/Árni Sæberg

Aðalmeðferð í máli Suðurhúsa ehf. gegn Flugleiðahótelum og Icelandair Group fór fram í Landsrétti í gær. Suðurhús, fasteignafélag í eigu Skúla Gunnars Sigfússonar, sem iðulega er kenndur við Subway, krefst þess að niðurstaða héraðsdóms frá því í mars í fyrra verði staðfest. Héraðsdómur dæmdi þar Flugleiðahótel til að greiða fasteignafélaginu tæpar 150 milljónir að viðbættum dráttarvöxtum vegna leiguskuldar.

Force majeure

Deilur Suðurhúsa og Flugleiðahótela ná aftur til aprílmánaðar 2020, en í kjölfar viðamikilla takmarkana á samkomum ákvað hótelkeðjan einhliða að greiða aðeins fimmtung samningsbundinna leigugreiðslna. Flugleiðahótel byggðu mál sitt á force majeure-reglunni fyrir héraðsdómi, eða reglunni um óviðráðanleg ytri atvik. Reglan vísar til þess að ófyrirséð og óviðráðanlegt atvik valdi því að ómögulegt sé að efna samningsskuldbindingu, og það eigi að hafa áhrif á samningsskuldbindinguna og það hvort kröfuhöfum er heimilt að beita vanefndarúrræðum.

Lestu meira um málið í ViðskiptaMogganum.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK