Draumurinn úti að sinni

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Niceair.
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Niceair. mbl.is/Þorgeir

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Niceair, segir ástæður gjaldþrots félagsins að flestu leyti mega rekja til sviksamlegra viðskipta erlends samstarfsaðila þess (HyFly) sem gerði því ókleyft að halda áfram rekstri.

Þorvaldur Lúðvík opnaði sig um málið á samfélagsmiðlum í kvöld. Í færslunni viðurkennir hann að einnig hafi verið gerð mistök á Íslandi.

Margra vikna lífróður

„Það er orðið ljóst að ekki reyndist unnt að bjarga því sem eftir var af Niceair eftir margra vikna lífróður. Stjórn fann sig tilneydda til að óska gjaldþrotaskipta. Ég reyndi til hins ítrasta að fá fjárfesta að verkefninu og bjarga því sem bjargað varð, taka skref til baka til að taka flugið í vetur eða næsta vor,“ segir Þorvaldur.

Segir hann áætlaðan kostnað við þann „biðleik“ hafa hlaupið á 90-135 milljónum króna sem síðan þyrfti að endurfjármagna þegar flug myndi hefjast á nýjum forsendum. Hann segir undanfarnar vikur hafa farið í mikla vinnu við að ræða við fjárfesta utan hluthafahópsins, en að oftar en ekki hafi samtalið endað á þeim nótum að þessu hlyti að verða reddað fyrir norðan sem hann segir að hafi ekki gengið eftir.

Leikur sem fór í gang?

Þorvaldur segir almennt séð hafa gengið vel að fljúga um Akureyri og að áætlanir gerðu ráð fyrir jafnvægi í rekstrinum á árinu 2023, enda myndi Bretland bætast við sem nýr áfangastaður í haust.

„Það sýndi sig að flug um Akureyri er raunhæft. Niceair varð fyrir tveimur meiri háttar skakkaföllum: 1. Ekki voru til staðar flugheimildir hjá samstarfsaðila (HiFly) milli Íslands og Bretlands (2022) 2. Sami samstarfsaðili fór síðast í vanskil við eiganda vélarinnar, Avolon, sem endaði á að gera vélina upptæka (2023).

Tjónið segir hann fyrst og fremst hafa lent á Niceair þar sem félagið hafði aðeins yfir þessari einu vél að ráða og að án flugvélar verði engar tekjur til.

„Veruleg umframeftirspurn er nú eftir flugvélum og leiguverð hefur hækkað skarpt, sem kannski skýrir þann leik sem síðar fór í gang þegar HiFly greiddi ekki af vélinni „okkar“. Eftir að við höfðum ekki lengur umráð yfir vélinni „okkar“ sem leigufélagið glutraði úr höndunum á sér, þvarr sá áhugi fjárfesta sem verið hafði.“

Mjög þungbært

„Það er mjög þungbært að hugsa til þess að almenningur verði fyrir fjártjóni og hluthafar sjái á bak miklum fjármunum, sem voru notaðir til að búa til gott félag sem veitti góða þjónustu, en entist ekki líf til að komast upp úr sandkassanum.

Það er einnig þungbært að sjá á bak vinnustað sínum og samstarfsfólki, á sama tíma og það verður endanleg niðurstaða að draumur minn og mjög margra annarra, er úti að sinni.

Ég hafði ástríðu og hjarta í þetta verkefni. Ég lagði líf og sál, ómældan svita og andvökunætur í að láta þetta ganga upp.

Þessum kafla er lokið hjá mér.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK