Sviss vann Eurovision

Nemo heldur á lofti hljóðnemanum eftir að hafa unnið Eurovision.
Nemo heldur á lofti hljóðnemanum eftir að hafa unnið Eurovision. AFP/Tobias Schwarz

Nemo frá Sviss vann Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva með laginu The Code. Baby Lasagna frá Króatíu varð í öðru sæti með lagið Rim Tim Tagi Dim.

Nemo þegar ljóst var að hán hafði unnið Eurovision í …
Nemo þegar ljóst var að hán hafði unnið Eurovision í ár. AFP/Tobias Schwarz
Nemo flutti lagið The Code fyrir Sviss.
Nemo flutti lagið The Code fyrir Sviss. AFP/Jessica Gow
Króatíski söngvarinn Marko Purišić, einnig þekktur sem Baby Lasagna.
Króatíski söngvarinn Marko Purišić, einnig þekktur sem Baby Lasagna. AFP/Jessica Gow

Baulað í Malmö

Áhorfendurnir í Malmö bauluðu þegar Ísrael kynnti dómnefndarstigin sín. Ísraelar gáfu Lúxemborg 12 stig en flytjandinn Tali er frá Ísrael.  

Einnig var baulað í hvert skipti sem Ísrael fékk stig frá dómnefndum frá hverju landi fyrir sig.

Þá var baulað þegar átti að tilkynna stig almennings fyrir Ísrael en landið hlaut 323 stig og var tímabundið í fyrsta sæti, með 375 heildarstig. Í kjölfar þeirrar stigagjafar þagnaði í áhorfendum í Malmö.

Íslenska dómnefndin gaf Frakklandi 12 stig en það var Friðrik Ómar Hjörleifsson sem tilkynnti stigin.

Hin rússneska og ísraelska Eden Golan söng lagið Hurricane fyrir …
Hin rússneska og ísraelska Eden Golan söng lagið Hurricane fyrir Ísrael. AFP/Jessica Gow

Umdeild keppni 

Keppnin var sérlega umdeild í ár vegna þátttöku Ísraels í keppninni í skugga stríðsreksturs ríkisins á Gasasvæðinu.

Palestínski fán­inn og varn­ing­ur sem ber með sér póli­tísk skila­boð var bannaður í Arena-höllinni í Malmö þegar keppnin stóð yfir.

Tilkynnt var fyrir keppnina að hver sá sem reyndi að koma inn í höll­ina með palestínsk­an fána eða varn­ing sem hef­ði póli­tísk skila­boð yrði stöðvaður við inn­gang­inn.

Franski söngvarinn Slimane Nebchi söng lagið Mon amour fyrir Frakkland.
Franski söngvarinn Slimane Nebchi söng lagið Mon amour fyrir Frakkland. AFP/Tobias Schwarz

Keppnin sniðgengin

Haldnir voru samstöðutónleikar með Palestínu í Háskólabíói á sama tíma og fyrri undankeppnin fór fram á þriðjudagskvöldið. 

Falastinvision var svo haldin í Bíó paradís í kvöld á sama tíma og Eurovision fyrir þau sem vildu sniðganga keppnina.

Heilbrigðisyfirvöld á Gasa telja að um 35.000 Palestínumenn hafi fallið í árásum Ísraelshers sem hafa staðið yfir frá 7. október í fyrra.

Finnska atriðið var lagið No rules! með Windows95man.
Finnska atriðið var lagið No rules! með Windows95man. AFP/Jessica Gow
Söngkonan Tali söng lagið Fighter fyrir Lúxemborg.
Söngkonan Tali söng lagið Fighter fyrir Lúxemborg. AFP/Jessica Gow
Armeníska söngkonan Jaklin Baghdasaryan söng lagið Jako fyrir land sitt.
Armeníska söngkonan Jaklin Baghdasaryan söng lagið Jako fyrir land sitt. AFP/Tobias Schwarz
Írska nornin Bambie Ray Robinson, eða Bambie Thug, söng Doomsday …
Írska nornin Bambie Ray Robinson, eða Bambie Thug, söng Doomsday blue fyrir Írland. AFP/Tobias Schwarz
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Með réttum félaga getur þú myndað sterkt bandalag til að hrinda áhugamálum þínum í framkvæmd. Mundu samt að ganga hægt um gleðinnar dyr svo ekki fari allt í vitleysu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Lucinda Riely og Lucinda Riley
3
Eppu Nuotio
4
Sofie Sarenbrant
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Með réttum félaga getur þú myndað sterkt bandalag til að hrinda áhugamálum þínum í framkvæmd. Mundu samt að ganga hægt um gleðinnar dyr svo ekki fari allt í vitleysu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Lucinda Riely og Lucinda Riley
3
Eppu Nuotio
4
Sofie Sarenbrant
5
Birgitta H. Halldórsdóttir