Chrissy Teigen fær mikla hjálp með börnin

Chrissy Teigen hefur fengið mikla hjálp.
Chrissy Teigen hefur fengið mikla hjálp. mbl.is/AFP

Fyrirsætan Chrissy Teigen segir í nýrri færslu á Twitter að hún fái mikla hjálp með börnin sín. Teigen byrjaði að vinna stuttu eftir fæðingu beggja barna sinna. Hún á þriggja ára dótturina Lunu og 15 mánaða son, Miles, með eiginmanni sínum John Legend. 

Teigen stjórnar nú þáttunum Bring The Funny og spurði einn aðdáenda hennar út í það hvernig hún færi að því að vera vinnandi mamma og vera svona lengi frá börnum sínum. Í svari sínu segir Teigen að hún hafi alltaf fengið mikla hjálp og sé óendanlega þakklát fyrir stuðninginn sem hún hefur fengið. 

Hún er einnig svo heppin að sjónvarpsstöðin sem hún vinnur hjá er með barnagæslu svo hún þarf ekki að skilja börnin sín eftir langt í burtu frá vinnustaðnum.

Teigen og Legend hafa talað um að þau langi til að eignast eitt barn í viðbót. Í mars síðastliðnum sagði Teigen að sig langaði til að eignast eitt barn í viðbót og koma sér svo í form. Þreytan virðist þó hafa náð í skottið á henni því að í byrjun ágúst svaraði hún fylgjanda sínum á Instagram í athugasemd að þau ætluðu að bíða í nokkur ár með það að reyna að eignast þriðja barnið, þar sem Luna og Miles væru nógu þreytandi. 

View this post on Instagram

everything’s fine over here

A post shared by chrissy teigen (@chrissyteigen) on Aug 26, 2019 at 4:34pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert