Heilbrigðisráðuneyti Bandaríkjanna hefur falið bandaríska varnarmálaráðuneytinu að undirbúa móttöku allt að 20 þúsund barna sem hafa komið til landsins með ólöglegum hætti án fylgdarmanns.
AFP-fréttastofan hefur eftir ónefndum embættismanni að varnarmálaráðuneytið hefur verið „beðið um að styðja heilbrigðisráðuneytið með því að útvega 20 þúsund rúm.“
Beiðnin kemur í kjölfar undirritun Donalds Trumps Bandaríkjaforseta á tilskipun þess efnis að fjölskyldur sem koma ólöglega yfir landamærin verði ekki lengur aðskildar. Alls hafa 2.342 börn verið tekin frá 2.206 foreldrum frá 5. maí til 9. júní.
Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa einnig verið að skoða hvort hægt sé að nýta herstöðvar í suðurhluta landsins, þrjár í Texas og eina í Arkansas, til að hýsa fjölda barna sem fara fylgdarlaus yfir landamærin frá Mexíkó, en sá hópur er mun fjölmennari en sá sem hefur verið aðskilinn frá foreldrum sínum.
Í tilskipuninni sem Trump undirritaði í gær kemur fram að það sé á ábyrgð varnarmálaráðuneytisins að útvega húsnæði fyrir fjölskyldur ólöglegra innflytjenda, eða að byggja nýtt sé þörf á því.