Konan sem úlnliðsbrotnaði þegar hún lenti í árekstri við Filippus, hertogann af Edinborg, segir að starfsfólk drottningar hafi hringt í hana eftir slysið en að Filippus sjálfur hafi ekki látið heyra í sér.
Emma Fairweather, 46 ára, segir að það komi sér á óvart að 97 ára gamall hertoginn hafi ekki reynt að hafa samband við hana eftir slysið.
Umferðaróhappið varð á A149-þjóðveginum á fimmtudag og endaði Land Rover Freelander-bifreið Filippusar á hliðinni eftir áreksturinn við Kia-bifreið Fairweather. Tveimur dögum eftir óhappið veitti lögreglan í Norfolk Filippusi tiltal fyrir að keyra án bílbeltis.
Fairweather segir að einn af starfsmönnum drottningar hafi skilið eftir skilaboð á símsvara.
„Þó það sé ágætt að drottningin virðist telja við hæfi að biðja starfsfólk sitt að hafa samband við mig og óska mér góðs bata þá lenti hún ekki í slysinu,“ sagði Fairweather í sambandi við enska fjölmiðla.
„Ég er enn svolítið hissa á því að Filippus hafi ekki haft samband við mig til að athuga hvernig ég hafi það,“ bætti hún við.
Fairweather var á ferð ásamt konu og níu mánaða barni henni þegar þær lentu í árekstrinum. Konurnar þurftu báðar að leita á spítala vegna meiðsla sinna en barnið slapp ómeitt.