Bann við lyfinu valdi konum alvarlegum skaða

Kona skoðar upplýsingar um lyfið mifepristone á símanum sínum.
Kona skoðar upplýsingar um lyfið mifepristone á símanum sínum. AFP/Olivier Douliery

Bandaríska dómsmálaráðuneytið hvatti áfrýjunardómstól í dag til að frysta úrskurð alríkisdómara í Texas um að banna þungunarrofslyf. Ráðuneytið hefur áfrýjað niðurstöðunni.

Dómarinn Matthew Kacsmaryk, sem Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, skipaði á sínum tíma, ógilti á föstudag tveggja áratuga gamalt samþykki bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitsins á lyfinu mifepristone.

Lyfið er notað fyrir meira en helming þeirra þungunarrofa sem framkvæmd eru árlega í Bandaríkjunum. Búist er við því að málið fari fyrir hæstarétt landsins.

Stofni heilsu kvenna í hættu

Í umsókn dómsmálaráðuneytisins kemur fram að úrskurðurinn myndi skaða konur alvarlega ef hann tæki gildi. Fundið verði fyrir skaðanum um allt land í ljósi þess að mifepristone hefur verið löglega notað í hverju ríki.

Joe Biden Bandaríkjaforseti hét því í síðustu viku að berjast gegn úrskurðinum og sagði hann vera fordæmalaust skref í þá átt að svipta konur frelsi og stofna heilsu þeirra í hættu.

Skömmu eftir að dómarinn í Texas gaf út ákvörðun sína úrskurðaði dómari í Washington-ríki í öðru máli að varðveita þyrfti aðgang að mifepristone. Dómarinn, Thomas Rice, taldi að lyfið væri bæði öruggt og löglegt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert