Kaupskip hæft með eldflaug

Hútar hæfðu breskt olíuskip á Aden-flóa í gærkvöldi. Myndin tengist …
Hútar hæfðu breskt olíuskip á Aden-flóa í gærkvöldi. Myndin tengist fréttinni ekki beint. AFP

Kaupskip var hæft með eldflaug á Aden-flóa í Jemen í dag sem varð til þess að eldur kviknaði í skipinu.

Stofnun á vegum breska sjóhersins, sem fylgist með framgangi viðskipta á heimshöfunum, greinir frá árásinni.

Fram kemur að herskip hafi komið til aðstoðar og að búið sé að slökkva eldinn.

Olíuskip hæft í gærkvöldi

Hútar hæfðu breskt olíuskip á Aden-flóa í gærkvöldi. Herskip komu til aðstoðar og eru skipverjar sagðir óhultir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert