Skafrenningur á Hellisheiði

Hálkublettir og skafrenningur er á Hellisheiði. Á Suðurlandi er að mestu greiðfært á þjóðvegi 1 en hálka eða hálkublettir á útvegum. Hálkublettir og skafrenningur er á Reynisfjalli við Vík.

Á Vesturlandi eru hálkublettir á láglendi en hálka á fjallvegum.

Á Vestfjörðum hálka eða snjóþekja. Þæfingsfærð er á Gemlufallsheiði.  Ófært er yfir Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði.  

Hálka eða snjóþekja er á flestum leiðum á Norðurlandi og víða skafrenningur á fjallvegum. Dettifossvegur er lokaður.

Það er einnig hálka og snjóþekja á vegum á Austurlandi og ófært yfir Öxi og Breiðdalsheiði. Hálka eða hálkublettir eru á Suðausturlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert