Ósáttur við hávaða og veittist að gestum

mbl.is/Hjörtur

Karlmaður var handtekinn í Grafarvogi á fyrsta tímanum í nótt grunaður um líkamsárás og eignaspjöll.

Að því er fram kemur í dagbók lögreglu var maðurinn ósáttur með mikinn samkvæmishávaða og önnur læti sem eiga að hafa fylgt samkvæminu. Veittist hann því að gestum og skemmdi bifreið. 

Þá var maður handtekinn í Hafnarfirði um áttaleytið í gær vegna gruns um þjófnað, en við leit á manninum fundust einnig efni sem talin eru vera fíkniefni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert