Nokkrir skjálftar yfir 2 stig

Jarðskjálftar á landinu síðustu tvo sólarhringa.
Jarðskjálftar á landinu síðustu tvo sólarhringa. Skjáskot/Veðurstofa Íslands

Jörð heldur áfram að skjálfa við Grímsey. Flestir eru skjálftarnir litlir en í nótt urðu nokkrir skjálftar um og yfir 2 stig. Rétt eftir miðnætti mældist 2,8 stiga skjálfti og annar jafnstór varð um hálftvö í nótt. Þriðji skjálftinn af þeirri stærð varð rétt fyrir sex í morgun. 

Síðustu tvo sólarhringana hafa 320 skjálftar mælst á landinu. Fjórir hafa verið yfir 3 stig og 40 á milli 2 og 3 stig að stærð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert