Íbúar Álftaness loki gluggum

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu vill koma þeim skilaboðum til íbúa á Álftanesi að þeir loki gluggum og hækki hita á ofnum í húsum sínum. Þá er því beint til íbúa annarsstaðar á höfuðborgarsvæðinu að þeir geri hið sama verði þeir varir við reyk.

Mikill eldur er nú í húsnæði Icewear í Miðhrauni í Garðabæ og stígur mikill reykur upp frá húsinu.

Eldurinn er í byggingu sem hýsir Icewear og Geymslur.is.
Eldurinn er í byggingu sem hýsir Icewear og Geymslur.is. mbl.is/Ásdís
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert