Til að gleðin gangi sem best

Frá Gleðigöngunni á síðasta ári.
Frá Gleðigöngunni á síðasta ári. Hanna Andrésdótir

Hápunktur Hinsegin daga, árleg Gleðiganga fer fram í dag, laugardaginn 11. ágúst, en í henni minna hinsegin einstaklingar á baráttumál sín, sýnilega og tilveru með gleðina í forgrunni. Líkt og fyrri ár hefur umfangsmikil gangan talsverð áhrif á samgöngur innan borgarkjarnans og því vert að kynna sér hvar gleðin verður við völd á götum úti, svo enginn þurfi að verða argur yfir að komast ekki heim til sín fastur í umferðinni.

Hafist verður handa við að stilla göngunni upp kl. 12 á hádegi á Sæbraut, austan Faxagötu, í nágrenni tónlistarhússins Hörpu. Tveimur tímum síðar, kl. 14. leggur gangan af stað og verður gengið eftir Kalkofnsvegi, Lækjargötu, Fríkirkjuvegi og Sóleyjargötu en þá taka við útitónleikar í Hljómskálagarðinum.

Þó að gangan hefjist ekki fyrr en 14.00 verður götum lokað mun fyrr eða kl. 10 og verður lokað til 18.00.



Sæbraut er lokuð frá gatnamótum Sæbrautar og Snorrabrautar og sem leið liggur í vestur að Lækjargötu sem einnig er lokuð og verur lokuð út Fríkirkjuveg og Sóleyjargötu, að hringtorginu við gatnamót Sóleyjargötu og Njarðargötu. Einnig er Geirsgata lokuð þar sem hún tekur við af Sæbraut og upp að Ægisgötu. Rétt er að geta að þótt almennt gildi að götur sé lokaðar til kl. 18 þennan dag er opnað fyrir umferð á Geirsgötu og Sæbraut klukkan 15.

Aðrar götur sem lokaðar eru þennan dag er kafli Skothúsvegar, eða frá Bjarkargötu að Fjólugötu. Skálholtsstígur er lokaður á kaflanum milli Fríkirkjuvegar og Laufásvegar og neðsti partur Bragagötu sömuleiðis, eða frá Fjólugötu.

Neðri hlutar Laugavegar og Hverfisgötu eru lokaðir, Hverfisgata upp að Ingólfsstræti og Laugavegur er með hefðbundna sumarlokun upp eftir Ingólfsstræti og einnig neðsti hluti Skólavörðustígs.


Amtmannsstígur er lokaður sem og Þingholtsstræti sem er lokað að Bókhlöðustíg. Síðustu ár hafa allt að 90 þúsund manns mætt í Gleðigönguna en auk þess sem skipuleggjendur benda á að þennan dag er strætó góður samgöngumáti hafa bílastæðahús verið illa nýtt þessa daga og bílum verið lagt ólöglega þess í stað. 

Þegar Druslugangan var farin fyrir um tveimur vikum vakti athygli að hópur manna nýtti gönguna til að steggja einn þeirra en gangan er farin til að mótmæla kynferðisofbeldi og orðræðunni í kringum það. Forsvarsmenn Gleðigöngunnar hafa því séð sérstakt tilefni til að gefa það út að steggja- og gæsapartíhópar séu ekki velkomnir í gönguna enda sé gangan í þágu mannréttinda og mannvirðingar og eru ófiðraðir steggir og fjaðralausar gæsir beðin að virða það og finna sér annan vettvang. Einnig eru gestir sem ekki eru með sérstök atriði beðnir um að leyfa vögnunum að fara fyrstir og slást ekki í för með göngunni fyrr en síðasti vagninn hefur farið framhjá.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert