Eldur í rusli og smádóti í Varmadal

Tilkynnt var um eld í Varmadal.
Tilkynnt var um eld í Varmadal. mbl.is/Eggert

Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu fór á fimmta tímanum í dag í útkall vegna elds í rusli og smádóti í Varmadal á Kjalarnesi. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði var í fyrstu talið að um húsbruna væri að ræða. Dregið var úr viðbúnaði eftir að annað kom í ljós.

Slökkviliðið minnir á að óheimilt er að brenna rusl en eldurinn verður slökktur og tilkynnt verður um atvikið til eldvarnareftirlits samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert