„Hafa enga skyldu til að mæta“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Gunnar Bragi Sveinsson og Anna Kolbrún Árnadóttir …
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Gunnar Bragi Sveinsson og Anna Kolbrún Árnadóttir á fundi flokksins fyrr í vetur. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Miðflokkurinn segir að þeir þingmenn sem hafa verið boðaðir á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar hafi enga skyldu til að mæta. „Það er afar fátítt að þingnefndir séu notaðar í jafn augljósum pólitískum tilgangi og átti að gera. Slíkt á ekki að viðgangast.“

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem flokkurinn hefur birt á Facebook í tengslum við umræðu um Klaustursmálið svokallaða.  

Þá segir flokkurinn að það sé ekki rétt, sem haldið hafi verið fram í fjölmiðlum, að ekki hafi verið hægt að ná í Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins. Alltaf sé hægt að ná í hann af starfsmönnum Alþingis. 

Þar segir einnig, að skýrslutaka yfir manneskju sem „gerðist sek um eða tók á sig sök um hlerun er einungis einn liður í nauðsynlegri gagnaöflun“. Ekki sé búið að ákæra neinn og ekki að fara fram á bætur frá neinum.

Yfirlýsingin í heild er svohljóðandi:

„Vegna umræðu í fjölmiðlum er rétt að taka eftirfarandi fram. Skýrslutaka yfir manneskju sem gerðist sek um eða tók á sig sök um hlerun er einungis einn liður í nauðsynlegri gagnaöflun. Við reiknum fastlega með því að ýmislegt eigi eftir að koma fram. Rétt einstaklinga til friðhelgi ber alltaf að virða og er það okkar helsti útgangspunktur. Ekki er búið að ákæra neinn og ekki að fara fram á bætur frá neinum.

Varðandi þær fullyrðingar sem komið hafa fram í fjölmiðlum um að ekki hafi verið hægt að ná í formann okkar er sannleikurinn sá að alltaf er hægt að ná í Sigmund Davíð af starfsmönnum Alþingis eða koma boðum til hans. Svar við fundarboði var tilbúið en kl. 17.00 var fundurinn afboðaður. Engin tímamörk voru höfð í fundarboði. Það var vitað að hvert svo sem svarið hefði orðið hefði það lekið í fjölmiðla nær samstundis.

Það er líka rétt að benda á að þeir sem voru boðaðir á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar hafa enga skyldu til að mæta. Það er afar fátítt að þingnefndir séu notaðar í jafn augljósum pólitískum tilgangi og átti að gera. Slíkt á ekki að viðgangast.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert