Sendir íbúum Srí Lanka samúðarkveðju

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. mbl.is/Kristinn Magnússon

Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson sendi í dag samúðarkveðju til Maithripala Sirisena, forseta Srí Lanka, og annarra íbúa þar vegna hryðjuverkanna sem framin voru þar í landi í gær.

Sagði forseti í kveðjunni að hugur okkar væri hjá þeim sem misst hefðu ástvini eða orðið fyrir árásum; og að ekkert geti réttlætt slík grimmdarverk. Jafnframt kvaðst forseti vona að umburðarlyndi í trúarlegum efnum, sem fyrir hendi væri í Srí Lanka, mundi ná að dafna og aukast í framtíðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert