Samið við Teit Jónasson

Teitur Jónasson ehf. er öflugt fyrirtæki í ferðaþjónustu.
Teitur Jónasson ehf. er öflugt fyrirtæki í ferðaþjónustu. mbl.is/Golli

Bæjarráð Kópavogs samþykkti á fundi sínum í gær að ganga til samninga við Teit Jónasson ehf. um að annast ferðaþjónustu fatlaðra í bænum.

Starfsmenn bæjarins hafa farið yfir helstu þætti tilboðsins. Ekki hafa fundist villur og fyrirtækið stenst þær kröfur sem gerðar eru. Eigi að síður verður farið yfir alla liði tilboðsins áður en skrifað verður undir samninga til þess að athuga hvort tilboðið standist.

„Þetta er umtalsvert lægra en við reiknuðum með en fyrir hönd bæjarins get ég ekki sagt að mér þyki þetta of lágt tilboð. Ég hlýt að vera mjög ánægður með niðurstöðuna,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri, spurður hvort tilboðið væri ef til vill of lágt.

Tilboð Teits Jónassonar ehf. í akstursþjónustuna reyndist langlægst í útboði bæjarins. Fyrirtækið býðst til að taka verkið að sér fyrir 776 milljónir kr. sem er 424 milljónum undir kostnaðaráætlun sem hljóðaði upp á 1.200 milljónir, eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert