Hlemmur tekur stakkaskiptum

„Hlemmur verður kjörstaður fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og góður …
„Hlemmur verður kjörstaður fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og góður staður fyrir fólk og viðburði, eftirsóttur bíllaus staður, grænn og lifandi en einnig byrjunarreitur fyrir þau sem ætla í bæinn,“ segir í tilkynningu borgarinnar um nýtt deliiskipulag sem samþykkt var í dag. Teikning/Reykjavíkurborg

Hlemmur mun taka stakkaskiptum á næstu árum samkvæmt nýju deiliskipulagi. Meginmarkmið breytinganna er að skapa gott vistvænt umhverfi á Hlemmi fyrir gangandi vegfarendur og stað sem mun gegna mikilvægu hlutverki fyrir mannlíf og samgöngur á höfuðborgarsvæðinu, að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 

Nýja deiliskipulagið, sem samþykkt var til auglýsingar í skipulags- og samgönguráði í dag, miðar að því að auka aðdráttarafl Hlemms sem staðar sem fólk sækist eftir að fara á.

Í lok árs 2017 lagði Reykjavíkurborg af stað með hugmyndaleit að nýju skipulagi á Hlemmtorgi. Leitað var eftir hugmyndum um fyrirkomulag skipulags með tilliti til legu hágæða almenningssamgangna um svæðið ásamt nýrri nálgun á hönnun torgsvæðisins í kringum Hlemm.

Tillögur arkitektastofanna Mandaworks og DLD voru valdar til áframhaldandi þróunarvinnu við Hlemm fyrir endurhönnun svæðisins og gerð nýs deiliskipulags. Borgarráð þarf að staðfesta deiliskipulagstillöguna til auglýsingar.  

Nýja deiliskipulagið, sem samþykkt var til auglýsingar í skipulags- og …
Nýja deiliskipulagið, sem samþykkt var til auglýsingar í skipulags- og samgönguráði í dag, miðar að því að auka aðdráttarafl Hlemms sem staðar sem fólk sækist eftir að fara á. Teikning/Reykjavíkurborg

Helstu breytingar fram undan eru til að mynda nýtt Hlemmtorg sem verður endurskapað sem almenningsrými fyrir alla aldurshópa með aðgengi fyrir alla. Þá verður akandi umferð beint frá torgsvæðinu og nýr hjólastígur lagður meðfram svæðinu og tengir Hverfisgötu og Laugaveg upp að Bríetartúni. 

Ný gatnamót verða byggð á mótum Snorrabrautar og Borgartúns ásamt nýju torgi auk þess sem strætisvögnum og Borgarlínu verður beint niður Hverfisgötu og Laugaveg í sérrými gegnum nýtt torgsvæðið, norðan Hlemms, og hágæða biðskýli verða byggð á nýju Hlemmtorgi. 

Einnig verður nýtt yfirborðsefni, setaðstaða, leik- og dvalarsvæði ásamt gróðri ríkjandi þættir á nýju Hlemmtorgi ásamt vistvænni nálgun á meðhöndlun yfirborðsvatns.

Nýtt hlutverk sem opið svæði fyrir fólk

Hlemmur er nú þegar vinsæll staður meðal gangandi og hjólandi vegfarenda en talningar árið 2018 sýndu að 25 þúsund fóru um Hlemm. Í nýrri talningu í október 2019 kom fram að 70%, eða 17 þúsund manns, af heildarfjölda vegfarenda á Hlemmsvæðinu voru gangandi. 

Í tilkynningu borgarinnar segir að endurskoða þurfti almenningsrými á svæðinu m.a. með tilliti til þess að mathöll hefur verið opnuð á Hlemmi. Áætlað er að almenningssvæðið gefi m.a. aukna möguleika á svæði fyrir útiveitingar og  útimarkaði.Hlemmtorg mun því gegna nýju hlutverki sem opið svæði fyrir fólk og viðburði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert