Eldur í bíl í Hafnarfirði

Eldur kom upp í bifreið á bílaplani í Álfhellu í Hafnarfirði á níunda tímanum í morgun. Búið var að slökkva eldinn áður en slökkvilið kom á vettvang.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var bíllinn mannlaus þegar eldurinn kom upp en upptök eldsins eru ókunn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert