Vilja stöðva sölu bankanna

mbl.is/Hjörtur

Guðmundur Franklín Jónsson og Hildur Sif Thorarensen hafa sett á laggirnar undirskriftasöfnun gegn sölu á Íslandsbanka. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá þeim. Á https://synjun.is/er að finna undirskriftasöfnun þar sem skorað er á forsetann að beita sér gegn sölu bankanna. 

Hildur Sif Thorarensen.
Hildur Sif Thorarensen. mbl

„Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar, þau Katrín Jakobsdóttir og Bjarni Benediktsson, hafa lýst yfir að nú skuli hefja undirbúning á sölu Íslandsbanka þrátt fyrir að ljóst sé að ekki muni fást fullt verð fyrir bankann og hann verði því seldur með tapi. Við sem þjóð erum enn brennd eftir hrunið 2008 sem hafði afdrifaríkar afleiðingar fyrir einstaklinga og fyrirtæki í landinu. Í kjölfar hrunsins bjargaði ríkið bönkunum með tilheyrandi útgjöldum úr ríkissjóði og nú loks þegar íslenska þjóðin sér þá fjárfestingu bera ávöxt þá vilja ráðamenn rífa hana af þjóðinni og selja á undirverði. Nei, takk.

Guðmundur Franklín Jónsson.
Guðmundur Franklín Jónsson.

Við höfum ítrekað þurft að horfast í augu við brostin loforð og svik af hálfu ríkisstjórnar Íslands. Hver man ekki eftir því þegar byggja átti spítala fyrir þá upphæð sem fengist fyrir söluna á Landsímanum árið 2005[?] Nú eru liðin 15 ár og sá spítali hefur enn ekki risið og nú á að leika sama leikinn aftur og hafa fé af þjóðinni sem hún sárlega þarf á að halda. Ávöxtun eiginfjár bankans, fyrstu þrjá ársfjórðunga 2019, nam allt að 7,9% sem telst alveg frábært. Bankar um alla Skandinavíu eru metnir yfir bókfærðu verði en nú talar Bjarni Benediktsson um að selja Íslandsbanka langt undir því þrátt fyrir góða ávöxtun hans. Þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru glórulausar og munu kosta þjóðina stórfé. Hingað og ekki lengra!“ segir í fréttatilkynningu sem þau hafa sent á fjölmiðla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert