„Ekki eitthvað sem maður vill upplifa á hverjum degi“

Hilmar Elísson var í dag útnefndur skyndihjálparmaður ársins af Rauða …
Hilmar Elísson var í dag útnefndur skyndihjálparmaður ársins af Rauða krossi Íslands. Ljósmynd/Mosfellingur

„Það er heiður að fá þessa viðurkenningu og að sjálfsögðu er maður ánægður með að þetta fór vel, af því að þetta leit ekki vel út í fyrstu,“ segir Hilmar Elísson, sem var fyrr í dag útnefndur skyndihjálparmaður ársins 2019, í samtali við mbl.is.

Rauði krossinn á Íslandi útnefndi Hilmar fyrir þátt hans í björgun manns sem lá meðvitundarlaus á botni Lágafellslaugar í Mosfellsbæ á síðasta ári. Hann viðurkennir fúslega að atvikið hafi reynt á hann.

„Þetta er ekki eitthvað sem maður vill upplifa á hverjum degi. Þetta er öðruvísi — en í þessum aðstæðum þá er bara framkvæmt, maður getur ekki verið að hugsa neitt fyrr en eftir á."

Hilmar hefur um nokkurt skeið verið í karlaþreki í World Class í Lágafellslaug í Mosfellsbæ. Eftir æfingar fara þeir gjarnan í pottinn en Hilmar ákvað að taka auka sundsprett einn janúardag í fyrra áður en hann slakaði á í pottinum. Þegar hann var kominn í dýpri enda laugarinnar sá hann mann á botninum.

Hann hugsaði með sér að mögulega væri hann að kafa en ákvað að athuga nánar með hann. Hilmar ýtti við manninum sem sýndi engin viðbrögð. Hilmar fór þá aftur niður, greip í manninn og togaði upp en þá var maðurinn alveg líflaus.

Hilmar kallaði á fleiri til að aðstoða sig við að ná manninum upp á bakkann. Annar maður hóf endurlífgun meðan Hilmar hljóp og lét hringja á 112. Með Hilmari í karlaþrekinu er margreyndur slökkviliðsmaður sem var í pottinum þegar atburðarásin fór af stað en hann tók yfir endurlífgunina. Hilmar segir að það hafi tekið rúma mínútu að fá lífsmark í manninn aftur. Sem betur fer var sjúkrabíllinn fljótur á vettvang.

Hilmar gerir ekki mikið úr sínum þætti í björguninni en er þakklátur fyrir að hafa verið á réttum stað á réttum tíma.

Sonur Hilmars, Huginn Hilmarsson, veitti viðurkenningunni móttöku í Björgunarmiðstöðinni að Skógarhlíð í dag þar sem Hilmar er staddur erlendis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert