Vinna að nýjum spítala

Í lok ágústmánaðar voru opnuð tilboð vegna byggingar meðferðarkjarna nýs …
Í lok ágústmánaðar voru opnuð tilboð vegna byggingar meðferðarkjarna nýs Landspítala. Ljósmynd/Ari Þorleifsson

Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri Nýs Landspítala, segir að uppbygging nýs húsnæðis við Hringbraut sé á fullri ferð. Stefnt er að því að uppsteypa á meðferðarkjarnanum, stærsta húsinu, hefjst innan tíðar að sögn Gunnars.

„Það gætu verið allt að átta vikur í það þar sem yfirferð er í gangi.“ Á annað hundrað hönnuða og verkefnisstjóra eru við störf á hverjum degi í hönnunar- og undirbúningsverkefnum, að sögn Gunnars, en ÍAV er einnig á lokastigi við frágang lóðaverkefnis og hellulagningu. Fljótlega komi nýr jarðvinnuverktaki inn á svæðið, til þess að fullvinna frágang vinnubúðareitsins.

„Nú er staðan þannig að það hafa verið í gangi fjölmörg útboð tengd uppbyggingu á svæðinu,“ segir Gunnar í umfjöllun um þessar framkvæmdir í Morgnblaðinu í dag. Flest útboðanna hafi verið opnuð í lok ágústmánaðar og í byrjun septembermánaðar en yfirferðartími stendur nú yfir og tekur síðan við kærufrestur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert