Einn íslenskur miðahafi í Víkingalottó var með allar fimm tölurnar réttar í réttri röð í Jókernum og hlýtur hann tvær milljónir króna í vinning. Miðinn var keyptur í Lottó-appinu.
Hvorki fyrsti né hinn alíslenski þriðji vinningur gengu út í þetta skiptið, en annar viningur sem var upp á 36 milljónir króna fór óskiptur til Danmerkur.
Þá voru fimm miðahafar með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jóker og hlýtur hver þeirra hundrað þúsund krónur í vinning. Einn miðinn var keyptur í Happahúsinu í Kringlunni í Reykjavík, annar miði var keyptur á heimasíðu Lottó og þrír miðanna voru í áskrift.