Umferðarslys á Vesturlandsvegi

Vesturlandsvegur á Kjalarnesi. Grundarhverfi til hægri.
Vesturlandsvegur á Kjalarnesi. Grundarhverfi til hægri. mbl.is/Sigurður Bogi

Umferðarslys var á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi fyrr í dag. Um er að ræða tveggja bíla árekstur. 

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að veginum hafi verið lokað við Esjuskála og Klébergsskóla. 

Umferð er beint í gegnum Grundarhverfi á Kjalarnesi. 

Ekki fengust frekari upplýsingar að svo stöddu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert