Umferðaróhapp á Miklubraut

Slökkvilið og sjúkraflutningamenn voru kallaðir á vettvang.
Slökkvilið og sjúkraflutningamenn voru kallaðir á vettvang. Ljósmynd/Ingvar Guðmundsson

Slökkvilið og sjúkraflutningamenn voru kallaðir til þegar umferðaróhapp varð á öðrum tímanum á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu urðu engin slys á fólki en eins og sjá má á meðfylgjandi mynd eru einhverjar umferðartafir á gatnamótunum.

Ekki er ljóst hvað olli óhappinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert