Langar bílaraðir á Holtavörðuheiði

Bílaraðir hafa myndast á heiðinni. Mynd úr safni.
Bílaraðir hafa myndast á heiðinni. Mynd úr safni. Mynd/mbl.is

Holtavörðuheiði er enn lokuð vegna veðurs. Þar eru bílar stopp og langar raðir hafa myndast á heiðinni. Umferðarhlið hafa verið sett upp til að greiða úr flækjunni.

Hægt er að fara hjáleið um Bröttubrekku og Laxárdalshæð. Þetta kemur fram í færslu Vegagerðarinnar.

Þá er snjóþekja og éljagangur á Hellisheiði og í Þrengslum. Hálka er á Sandskeiði og hálkublettir víða á svæðinu. Sömu sögu er að segja af vegum í Húnavatnssýslum þar sem skyggni er slæmt. Þungfært er um Vatnsnesveg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert